Völlurinn
Lundsvöllur í Fnjóskadal er staðsettur í landi Lunds sem er gömul landnámsjörð sem Þórir Snepill nam, og er völlurinn staðsettur mitt á milli Vaglaskógar og Lunsskógar. Fjarlægðin frá þjóvegi 1. að vellinum eru 8 km og 1. km frá þjónustumiðstöðinni í Vaglaskógi.
9. holu golfvöllur
Lundsvöllur er 9. holu golfvöllur, par 35 með gula og rauða teiga og er heildar lengd brauta af gulum teigum 2.378 m. Á vellinum eru 3 par 3 holur, 2 par 5 holur og 4 par 4 holur.
Völlurinn er á flata fyrir neðan bæinn Lund skammt frá bökkum Fnjóskár. Einkenni vallarins er mikið berjalyng sem umlykur hann, einnig er lækur sem rennur í gegnum hann miðjan og hefur áhrif á leik á 5. holum.
Staðsetning
Völlurinn er á flata fyrir neðan bæinn Lund skammt frá bökkum Fnjóskár. Einkenni vallarins er mikið berjalyng sem umlykur hann, einnig er lækur sem rennur í gegnum hann miðjan og hefur áhrif á leik á 5. holum. Hæðarmunur á hæsta og lægsta punkti vallarins eru 12 m.
Vandað til verka
Við uppbyggingu á vellinum var fengin aðstoð frá fagmanni sem koma að hönnun vallarins og uppbyggingu. Allar flatir og teigar eru uppbyggð frá grunni og var grasfræjum sáð í það. Einnig er vökvunarkerfi í flötum vallarins. Lundsvöllur er með staðfest vallarmat frá GSÍ síðan 23. mars 2010.
Veðursæld á staðnum er margrómuð, hitastig 3-4° hærra en á Akureyri, engin hafgola eða þoka nær þarna í dalinn. Við völlinn er 120 m2 klúbbhús með kaffi og veitingasölu og rúmar 55 manns í sæti.
This is a paragraph. Writing in paragraphs lets visitors find what they are looking for quickly and easily.

Project name here
This is the text area for this paragraph.
Project name here
This is the text area for this paragraph.
Project name here
This is the text area for this paragraph.
Project name here
This is the text area for this paragraph.